Sannvottun heilmyndar
1
Þegar þú horfir á heilmyndina á miðanum ættirðu að
sjá Nokia-handabandstáknið frá einu sjónarhorni og
„Nokia Original Enhancements“ táknið frá öðru.
2
Þegar þú snýrð heilmyndinni til vinstri, hægri, upp eða
niður ættirðu að sjá 1, 2, 3 eða 4 punkta, allt eftir
staðsetningu hennar.
Þó svo að þessum skrefum sé fylgt nákvæmlega er það ekki
fullkomin trygging fyrir því að rafhlaðan sé ósvikin. Ef þú
getur ekki staðfest að svo sé eða hafir þú minnstu ástæðu til
að ætla að rafhlaðan með heilmyndinni sé ekki ósvikin Nokia
rafhlaða skaltu ekki nota hana heldur fara með hana til
viðurkenndrar þjónustumiðstöðvar eða söluaðila Nokia.
Nánari upplýsingar um ósviknar Nokia rafhlöður er að finna
á www.nokia.com/battery.