SIM-korti og rafhlöðu komið fyrir
Þessi sími er ætlaður til notkunar með BL-5CB rafhlöðu.
Örugg fjarlæging. Alltaf skal slökkva á tækinu og aftengja hleðslutækið áður en
rafhlaðan er fjarlægð.
1 Settu fingurinn í grópina neðan á tækinu og opnaðu með því að lyfta varlega upp
bakhliðinni (1).
2 Taktu rafhlöðuna úr (2).
3 Settu SIM-kortið í (3). Gættu þess að gyllti snertiflöturinn snúi niður og skáhornið á
SIM-kortinu vísi niður á við.
4 Settu rafhlöðuna í tækið (4) og svo hlífina á sinn stað (5, 6, 7).