Nokia 1616 - Neyðarhringingar

background image

Neyðarhringingar
Mikilvægt:
Þetta tæki notar útvarpsmerki, þráðlaus

staðarnet, kapalkerfi og notendaforritaðar aðgerðir. Ef tækið

styður símtöl á internetinu (netsímtöl) skaltu bæði kveikja á

farsímanum og á netsímtölum. Tækið getur reynt að koma á

neyðarsímtölum í farsímakerfinu og um þjónustuveitu

netsímtala ef bæði eru virk. Ekki er hægt að tryggja tengingu

við allar aðstæður. Því skyldi aldrei treysta eingöngu á

þráðlaust tæki ef um er að ræða bráðnauðsynleg fjarskipti,

t.d. í bráðatilvikum.

Neyðarsímtal:

1

Ef slökkt er á tækinu skal kveikja á því. Athuga skal hvort

nægilegur sendistyrkur sé fyrir hendi. Þú gætir einnig

þurft að ljúka eftirfarandi, allt eftir tækinu þínu:

Settu SIM-kort í tækið þitt ef það notar slíkt kort.

Eyddu öllum takmörkunum sem þú hefur valið í

tækinu þínu.

Breyttu sniðinu þínu úr sniði án tengingar eða

flugsniði í virkt snið.

2

Ýttu eins oft á endatakkann og þarf til að hreinsa

skjáinn og gera tækið reiðubúið fyrir símtöl.

3

Veldu opinbera neyðarnúmerið fyrir viðkomandi svæði.

Neyðarnúmer eru breytileg eftir stöðum.

4

Styddu á hringitakkann.

Í neyðarsímtali þarf að gefa upp allar nauðsynlegar

upplýsingar eins nákvæmlega og kostur er. Þráðlausa tækið

getur verið eina samskiptatækið á slysstað. Ekki má slíta

símtali fyrr en að fengnu leyfi til þess.